Alltof langt síðan ég setti hér inn færslu. Síðastliðinn mánuður hefur þó verið ansi viðburðaríkur. Nóg hefur verið að gera við að undirbúa kosningabaráttuna framundan. Það er að ýmsu að huga þegar framboð er undirbúið.
Elsku mamma lenti líka aftur inni á spítala mikið lasinn. Hún er komin aftur heim núna og er í góðu yfirlæti hjá eldri systur minni á Kjalarnesinu. Erum vongóð um að heilsan fari nú batnandi hjá henni og hún geti farið að nota vorsins og komandi sumars.
Listinn okkar hjá Framsókn í Hafnarfirði var kynntur á góðum fundi. Fullmannaður 22ja manna listi af fjölbreyttum hópi fólks í Hafnarfirði. Miklir snillingar og frábært fólk á öllum aldri, með mismunandi bakgrunn, menntun og reynslu. Fólk sem vill Hafnarfirði allt það besta. Hann má sjá allan hér á vef Rúv. Það er góður hugur í okkar fólki og við munum vinna af fullum krafti til að ná okkar málefnum inn á borð bæjarstjórnar næsta kjörtímabil.
Kosningaskrifstofan okkar var opnuð með pompi og prakt á Sumardaginn fyrsta. Flott húsnæði á Linnetstíg 2, í hjarta Hafnarfjarðar. Við vorum agalega ánægð með fjöldann af fólki sem leit við hjá okkur og þáði vöfflur og kaffi. Börnin stóðu í röð spennt að fá andlitsmálningu frá flottum konum sem kunnu til verka. Það verður mikið um að vera þar sem annarstaðar í Hafnarfirði næstu vikurnar.
Hér heima hafa allir lagst í slæma kvefpest í mánuðinum, strákarnir mínir fyrir páskana. Litla Rósa Maren var með hita og slen alla páskadagana. Sjálf lagðist ég síðan á annan í páskum og er enn að kljást við þetta. Við erum samt orðnar nokkuð fínar mæðgurnar, þó við séum báðar með hor í nös.
Verð að játa að það var pínu erfitt að standa á opnun kosningaskrifstofunnar með höfuðverk og stíflað nef. Ég gerði þó mitt besta og reyndi að láta ekki pestina hafa áhrif á mig. Ég hafði allavega mikið gaman að deginum. Alltaf gaman að hitta og spjalla við gott fólk. Vil nota tækifærið hér og þakka þeim sem litu við hjá okkur.
Málefnavinnan hefur verið á dagskrá hjá okkur og við erum spennt að kynna stefnuskrána okkar næstu daga. Sjálf hef ég alltaf verið mikill grúskari og fæ mikið út úr því að pæla og kynna mér stöðuna á hinum ýmsu málum. Það er forvitnin sem drífur mig áfram þar. Minn stærsti kostur er um leið einn af mínum göllum. Ég vil alltaf vita allt um það sem ég er að ræða. Það er ekki nóg fyrir mig að kynna mér aðalatriðin. Það er spennandi að koma mikilvægum málum áfram.
En ég hef þó þurft að kyngja því í nokkrum málum, og treysta á að aðrir séu með á hreinu það sem ég hef ekki sjálf komist yfir að koma mér alveg inn í. Passa mig samt á að segja ekki hvaða mál það eru hér, það gæti einhver hankað mig á því einn daginn. LOL..
En ég er þó óhrædd við að viðurkenna að ég bara hreinlega get ekki vitað allt, hversu mikið sem mig langar þó til þess. Ætli það sé ekki Meyjan í mér, sem gerir mér þetta. Smáatriðin verða stundum ansi stór í kollinum á mér. ;-)
Annars hefur síðastliðinn mánuður verið reynsluríkur, það er ýmislegt sem getur komið upp á sem maður reiknar ekki með.
Ætla að enda þessa færslu með því að minna okkur öll á að njóta þess að vera til. Vorið er mætt og fallegir sumardagar og nætur framundan.
Við stefnum á grænt Framsóknarvor ;-)
Góðar stundir. Hlakka til að deila með ykkur næstu vikum.
Þið getið átt von á fullt af færslum frá mér á næstunni.
Kosningar eftir mánuð. Blikk blikk. X- B