Pages

Monday, March 31, 2014

Félagasamtök og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði ættu að finna farveg fyrir nánara samstarf varðandi bæjarmálin.

Síðast félagsfundur Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði var haldinn í sal Kiwanisfélagsins Eldborgar í Helluhrauni.  Að koma inn í þann sal fékk mig til að hugsa um hversu mikilvæg frjáls félagasamtök eru í öllum samfélögum.  Í þeim starfar fjölbreyttur hópur fólks sem í sjálfboðastarfi vinnur við að efla og bæta það samfélag sem það býr í.  Í Hafnarfirði er fjöldinn allur af félagasamtökum sem einmitt bætir bæinn okkar á svo margan hátt og styrkir tengsl fólksins sem í þeim er.   Það er of langt að telja öll félögin upp hér og ef ég myndi gera það myndi ég eflaust gleyma einhverju þeirra, sem ég vil alls ekki gera.

Í dag er ég í Hörpu sem er félag framsóknarkvenna í Hafnarfirði. Harpan er síðan aðili að Bandalagi kvenna í Hafnarfirði sem eru regnhlífasamtök átta kvenfélaga í Hafnarfirði.  Í apríl verður einmitt haldinn næsti aðalfundur BKH.  Á aðalfundi BKH á síðasta ári, kom ég uppveðruð heim og full af stolti yfir því að tilheyra hópi þessara flottu kvenna sem á svo margan og misjafnan hátt vinna að þvi að bæta samfélagið okkar í félögunum sínum. Kvenfélögin eru síðan hluti af öllum þeim fjölda félaga sem finnast í Hafnarfirði. Hvort sem það eru íþróttafélög, góðgerðarfélög, trúfélög, foreldrafélög og svo mætti lengi telja.  

Sjálf var ég félagi í JCI (Junior Chamber International) í mörg ár. En JCI eru félagasamtök fyrir ungt fólk 18-40 ára sem vill bæta sig og sitt samfélag.  Þegar ég byrjaði í JCI 1998 var enn starfandi JC Hafnarfjörður sem því miður lagðist af fyrir þó nokkur mörgum árum.  En JC Hafnarfjörður var mjög öflugt JC félag og áttu þau meðal annars húsnæði í Dalshrauni 5, en þangað mætti ég nokkrum sinnum á fundi og námskeið.  Skemmtileg tilviljun að ég skyldi byrja að starfa með Framsókn í Hafnarfirði í sama húsi, en kosningaskrifstofan var þar á fyrstu hæðinni sl. vor í alþingiskosningunum.

Ég var virkur félagi í JCI allt til ársins 2008, þegar ég varð fertug.  Ég fylgist þó enn með og mæti og tek þátt af og til í skemmtilegum JCI viðburðum.  En ég er senator og ævifélagi og JCI hjartað mun alltaf slá hratt.  Í félagasamtökum einsog JCI fær maður gífurlega reynslu sem ekki fæst annarstaðar og eignaðist ég þar ævilanga vini hér heima og erlendis.   Ég gerði nánast allt það sem hægt var að gera í JCI, var í stjórn míns aðildarfélags, fór svo í landsstjórn og var síðan landsforseti 2007.  Tók þátt í verkefnum, sótti námskeið, leiðbeindi á námskeiðum, sótti fjöldamarga erlenda viðburði einsog evrópuþing, heimsþing og alþjóðleg námskeið og akademíur. Margar af mínum bestu minningum eru tengdar starfinu í JCI.  Þeir sem eru í svona félögum þekkja þetta, hvort sem það heitir JCI, Kiwanis, Lions, Rotary,Hringurinn, Zonta, Round Table osfrv.  

Þátttaka í sjálfboðastarfi gefur ekki bara einstaklingnum færi á að kynnast fólki, þroska hæfileika sína og byggja tengsl. Sjálfboðastarf er vítamínsprauta í samfélögin þar sem þau starfa.  Félögin eru síðan í miklu samstarfi við fyrirtækin í bænum sem styrkja þau á margvíslegan hátt svo þau geti á bestan hátt sinnt sínu.

Félög i Hafnarfirði hafa til dæmis gefið fjöldan allan af læknatækjum og búnaði á Hrafnistu, Sólvang og á St. Jósefsspítalann. Svoleiðis safnanir verða að veruleika með samstarfi fólksins, félaga og fyrirtækja í Hafnarfirði.  Það er reyndar skömm af því hvernig farið var með þau tæki og tól sem gefin voru á St. Jósefsspítala, hreinlega rán á miðjum degi á tækjum sem frjáls félagasamtök í Hafnarfirði höfðu unnið hörðum höndum við að safna fyrir. (það er eiginlega efni í annan pistil)

Á hverju kvöldi hittast stórir hópur Hafnfirðinga á fundi með félaginu sínu og funda um það hvernig félagsmenn geta lagt sitt af mörkum til að þjóna betur samfélaginu. Óeigingjarnt starf unnið í sjálfboðavinnu af áhugasömum Hafnfirðingum fyrir Hafnfirðinga.  

Það er mín skoðun að félagasamtök og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði ættu að finna farveg fyrir nánara samstarf varðandi bæjarmálin.  Með góðu og reglulegu samstarfi og samtali þessara aðila nýtist enn betur sú auðlind sem er í félagasamtökum bæjarins.


Félagasamtök í Hafnarfirði fá hrós frá mér.

Wednesday, March 26, 2014

Allskonar ýmislegt, og elsku mamma!

Komin tími á aðra færslu á bloggið, dagbókina eða hvað sem maður kallar svona færslur.  Ætli þetta verði ekki bara allt það.  Blogg, dagbók og allskonar ýmislegt.

Það hefur ýmislegt verið um að vera hjá mér síðastliðna daga.  Bæði vegna framboðsins og í einkalífinu.

Við Framsóknarfólk erum að sjálfsögðu glöð með daginn í dag.  Skuldaleiðréttingarfrumvarpið var kynnt á blaðamannafundi í dagþ Það fer síðan í umræðu í þinginu.  Næstu daga munu fjölmiðlar ræða það fram og til baka.  Ég ætla því að sleppa því að tjá mig mikið um það hér.  Það eru aðrir miklu betri en ég í því.  Í staðinn fer ég um víðan völl í þessari færslu.

Í gærkvöldi var haldin fulltrúaráðsfundur og almennur félagsfundur framsóknarfélaganna í Hafnarfirði. Ég var beðin um að stjórna báðum fundum og held það hafi tekist bara nokkuð vel hjá mér. Á fulltrúaráðsfundinum voru samþykktar tillögur að nefndarmönnum í fjáröflunarnefnd og í kosningastjórn. Farið var yfir hugsanlegt húsnæði fyrir kosningamiðstöð sem við berum vonir til að verði að veruleika, munum við kynna það þegar það er klárt.

Á félagsfundinum voru síðan almennar umræður sem snerust að mestu leyti um vikurnar og vinnuna framundan.  Ég var sérstaklega ánægð með afurð fundarins, einn dagskrárliðurinn fólst í því að allir fundarmenn voru beðnir um að segja frá því sem þeir væru tilbúnir að gera eða leggja til fyrir kosningabaráttuna.  Listinn sem kom út úr því var langur og fjölbreyttur.  Framsóknarmenn og konur í Hafnarfirði hafa mismunandi bakgrunn og það liggur mikill fjársjóður í því sem fólk er tilbúið að leggja á sig.  Einsog í öðrum félagasamtökum leggja félagsmenn Framsóknar á sig óeigingjarnt sjálfboðastarf og leggjast allir á eitt að bjóða fram tíma sinn og vinnu til að allt geti gengið sem best upp.  Það er ánægjulegt að finna þann mikla hug og jákvæðni sem er í félagsmönnum fyrir þessum 10 vikum fram að kosningum.

Tími minn milli funda vegna framboðsins hefur síðan að mestu farið í undirbúning og að hugsa um fólkið mitt og sinna einkaerindum. Já maður gerir það nefnilega líka  ;-)

Móðir mín var lögð inn á Hjartadeild LSP við Hringbraut í síðustu viku, en hún var farin að finna fyrir mikilli þreytu og erfiðleikum við öndun.  Þrátt fyrir mikil veikindi síðastliðin ár lætur hún sjaldan deigan síga og fer (að mér finnst) sér stundum aðeins of hratt.  En hún var á Selfossi að versla sér mold fyrir pottablómin sín þrátt fyrir þreytu og öndunarerfiðleika þegar hún fann að hún myndi fljótlega hníga niður ef hún kæmist ekki á spítala.  Mútta keyrði því nánast aðframkomin að sjúkrahúsinu á Selfossi (þurfti að ganga nokkurn spöl því ekkert bílastæði var laust nálægt).  Konurnar í móttökunni voru fljótar að sjá hvað var að og hún var strax lögð inn, en send síðar á Hjartadeildina á LSP með hjartabilun. Mikið vatn hafði safnast fyrir í líkamanum og gert hjartanu erfitt fyrir að slá.  Hún er núna orðin miklu betri en búin að fara síðan í hjartaþræðingu og er að fara í aðra slíka á morgun.  Við vonumst síðan til að hún verði orðin nógu góð til að fara heim fyrir helgina.

Ég hef notað hluta af hverjum degi í að heimsækja hana á spítalann og halda henni smá félagsskap.  Þó vel sé hugsað um mann á spítala er alltaf frekar einmanalegt að liggja þar. Jafnvel þó ég viti að vel sé hugsað um hana, þá höfum við samt áhyggjur af henni.  Það er ekki langt síðan hún lá inni á spítala vegna sýkingar í gervilið í hné í marga mánuði. Hún hefur verið að jafna sig á því síðastliðið ár. Þessvegna agalega fúlt að hjartað hafi farið að kvarta núna.  

Móðir mín býr annars fyrir austan á Brautarholti á Skeiðum og hefur stundum verið að keyra eins lasin og hún nú er til Selfoss og Reykjavíkur vegna læknastands allt upp í 3x - 4x í viku.   Húsnæðismarkaðurinn er þannig að þau hafa ekki fundið húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, ég vil endilega fá hana í Hafnarfjörðinn til okkar en það er lítið í boði sem hentar henni eða þau ráða við.  En þau eru að leita að 3ja herbergja íbúð helst á jarðhæð eða með lyftu, þarsem þau geta haft litlu tíkína sína með sér. Því miður er framboðið ekkert.   En ég er voða fegin að mamma ætlar að vera í nokkra daga eftir spítalaleguna hjá systur minni sem býr á Kjalarnesinu.  Því miður gera stigarnir hjá mér henni erfitt fyrir að gista hér.   Það verður því vonandi fjölskylduhátíð á Kjalarnesinu um helgina þar sem allir koma saman og mamma orðin eins hress og hægt er að búast við eftir svona uppákomur.

Dagurinn í dag var annars góður, þrátt fyrir rokið og rigninguna í morgun. Ég hafði áætlað að vera á vinnufundi vegna bæjarmála í dag, en vegna óviðráðanlegra orsaka var honum frestað þar til á morgun. Fór í staðinn í heimsókn til mömmu í fyrrafallinu og eldaði gómsætar fylltar kjúklingabringur fyrir mig og strákana.

Fer sátt að sofa og hugsa til elsku mömmu ;-)



Thursday, March 20, 2014

Byrjuð að blogga

Jæja,   þá er mín búin að búa til bloggsíðu.  Að blogga er eitthvað sem ég hef ekki gert lengi.

Hér er ætlunin að blogga um hitt og þetta sem liggur mér á hjarta þá stundina.  Það verður mikið um að vera hjá mér næstu vikurnar fram að sveitarstjórnarkosningum 31. maí og því sjálfsagt að deila skoðunum mínum, þá sérstaklega þeim sem snerta Hafnarfjörð. Ég mun þó ekki einskorða mig eingöngu við Fjörðinn fagra á þessum síðum. Mun örugglega fara um víðan völl.

Félagar mínir í Framsóknarflokknum í Hafnarfirði hafa treyst mér fyrir öðru sætinu á listanum.  Með mér á listanum eru mikir snillingar og sómafólk sem allt vill Hafnarfirði það besta.   Það er síðan okkar verkefni næstu vikurnar og fram að kosningum að sannfæra aðra Hafnfirðinga um að við séum traustsins verð og með hugmyndir og lausnir sem gera góðan bæ enn betri.  Um það snýst kosningabaráttan framundan.  Þetta blogg er minn þáttur í því.  Það er sjálfsagt að kjósendur í Hafnarfirði fái að kynnast því sem ég hef fram að færa og kynnist manneskjunni sem er á bakvið andlitið.

Síðastliðin ár hafa mál samfélagsins verið mér ofarlega í huga, þó svo ég hafi ekki verið neitt sérstaklega að ota mínum skoðunum að öðrum á opinberum vettvangi.  Skoðanir allra hafa rétt á sér, hvort sem við erum sammála þeim eða ekki.  Ég er öll að vilja gerð að hlusta á rök annara og á ekkert erfitt með að skipta um skoðun ef ég sannfærist um annað.  Að hlusta á sjónarmið annarra víkkar út sjóndeildarhringinn og færir okkur oftar en ekki nær því að komast að betri niðurstöðu. Um það snúast stjórnmálin í mínum huga.  

Læt þessar hugleiðingar duga í þessari fyrstu færslu minni.  
Skelli hérna með link á facebook síðu Framsóknar í Hafnarfirði