Var að uppfæra síðuna Um mig á þessari bloggsíðu sem ég setti upphaflega upp vegna sveitarstjórnarkosninganna sl vor. En það hefur margt breyst síðan þá.
Nú er ég í atvinnuleit og þá þurfa upplýsingar á allsherjar netinu að vera í takt við tímann.
Hef annars ekki snert þessa síðu síðan í vor. Ákvað að gefa mér góðan tíma til að melta það sem gekk á. Er enn sömu skoðunar og þegar ég sagði mig frá stjórnmálunum. Kýs nú að vera fyrir utan allt stjórnmálaþras. Svona opinberlega allavega ;-)
En ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið lærdómsríkur og áhugaverður tími.
Aldrei að vita nema ég skelli inn færslum hérna þegar andinn og þörfin kemur yfir mig.
Kveðja,
Jenný Jóakimsdóttir