Pages

Um mig

September 2014.
Uppfæri hér síðuna sem ég byrjaði með upphaflega vegna framboðs fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2014. En það hefur ýmislegt breyst síðan þá.   Núna er ég í atvinnuleit, og það þýðir ekki annað en að hafa alla öngla úti á þeim markaði.

Ég er uppalin í Vesturbænum í Reykjavík, gekk í Melaskóla til ellefu ára aldurs.  Flutti síðan með móður minni og systrum í Breiðholtið og fór þá í Hólabrekkuskóla.  Síðasta árið í grunnskóla var hinsvegar í Gagnfræðaskólanum í Mosfellsbæ, eftir að við fluttum á Kjalarnesið.   


Ég bý núna í Hafnarfirðinum fagra og hef gert sl. fjögur ár.   Synir mínir tveir 18 og 20 ára búa hér hjá mér ásamt litlu dömunni minni, henni Rósu Maren sem er fædd í júní 2013.


Félagsstörf:
Var varaformaður Hörpu - félagi framsóknarkvenna í Hafnarfirði 2013-2014.
Var í öðru sæti á lista Framsóknarflokksins í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum 2014. Hef nú sagt mig úr Framsóknarflokknum og kýs að vera utan alls flokksstarfs þessa dagana.
Gerðist félagi í JCI 1998 og hef þar fengið ómetanlega reynslu í stjórnun félagsstarfs og sjálfboðaliða.
Leiðbeindi þar á ýmsum námskeiðum bæði fyrir JCI félaga, önnur félagasamtök og fyrirtæki.
Sat í stjórn og var forseti í mínu aðildarfélagi. Var landsgjaldkeri JCI 2002 og landsforseti JCI Íslands 2007.


Var útnefnd heiðurs ævifélagi JCI og er senator númer 67505.

Hér að neðan eru upplýsingar úr ferilskránni minni.

MENNTUN

2001-2002 TÆKNIHÁSKÓLINN
BSc. International marketing
Lokaverkefni unnið fyrir Focal Groupware - fól i sér markaðsrannsókn, markaðsstefnu og markaðsáætlun gæðakerfis fyrir blóðbanka í Danmörku.

1999-2001 TÆKNIHÁSKÓLINN
Iðnrekstrarfræði markaðsfræðilína                                                                        
Lokaverkefni unnið fyrir Austurleið SBS  - fól i sér viðhorfskönnun viðskiptavina, stefnumörkun og markaðsáætlun.  

1986-1998 FJÖLBRAUTASKÓLINN Í BREIÐHOLTI
Stúdentspróf af viðskiptasviði - lokið 1998
Almennt verslunarpróf - lokið 1988


STARFSFERILL

2011- 2013 Aðhlynning, Sólvangur Hafnarfirði  

2010- 2011 Stuðningsfulltrúi, Holtakot Álftanesi  

2009 - 2011 Veitingastjóri, Eldsmiðjan Suðurlandsbraut

Mannaforráð yfir allt að 25 starfsmönnum á vakt. Ábyrgð á gæðum vöru og þjónustu. Uppgjör, pantanir, mönnun og staðgengill í fjarveru rekstrarstjóra.

2008 - 2009 Vaktstjóri, Amokka Kópavogi
Framreiðsla, þjónusta, uppgjör.

2005 - 2007 Verkefnastjóri, Ungir frumkvöðlar - Junior Achievement

Umsjón með námskeiðum Ungra frumkvöðla í grunn- og framhaldsskólum. Þjálfun leiðbeinanda, sjálfboðaliða og kennara. Umsjón með heimasíðu og kynningarefni. Öflun nýrra félagsaðila, sjálfboðaliða og samstarfsfyrirtækja. Fjáröflun. Samskipti við fjölmiðla, samstarfsaðila og systursamtök erlendis. Viðburðastýring.

2002 - 2005 Framkvæmdastjóri, Magic Tan á Íslandi  

Umboðsaðili Magic Tan. Eigin rekstur. Innflutningur og sala, rekstur brúnkustofu.

Önnur störf
Sumarstarf hjá Sláturfélagi Suðurlands í söludeild 2001, sumarstarf hjá  Orkuveitu Reykjavíkur í innheimtudeild 2000. Aðhlynning í hlutastarfi 1992 - 1999. Framreiðsla hjá Pottinum og Pönnunni 1990- 1992.  Fulltrúi á launadeild Póst og símamálastofnunar 1988- 1990.  Ofl.


Hef sótt fjöldan allan af námskeiðum um ævina, hér eru smá ágrip af nokkrum þeirra.

NÁMSKEIÐ

Maí 2011- Greiningarstöð ríkisins
Skipulögð kennsla. Kynning á TEACCH kerfinu, skipulagðri kennslu og vinnubrögðum.

Apríl 2008 - NTV- Nýi tölvu og viðskiptaskólinn.
Tölvubókhald í Navision MBS - 54 stundir.

Maí 2006 - JCI Academy, Leadership without boundaries.
Leiðtogaþjálfun. Japan - Matsue - Takamatsu. 10 dagar.

September 2006 - European Summit for Educators.
JA-YE Europe Core Programme Trainer course. Belgium- Brussels. 3 dagar.

Febrúar 2005 - JCI Media and Communication Masterclass.
Almannatengsl og samskipti. Greece- Athens. 7 dagar.

Júní 2004 - PRIME - Training for trainers.
Leiðbeinendatækni. Switzerland - Lausanne. 4 dagar.


Sendu mér línu á jjoakimsdottir@gmail.com eða hafðu samband við mig í síma 893 6720 ef þú vilt nánari upplýsingar.

No comments:

Post a Comment