Jæja, þá er mín búin að búa til bloggsíðu. Að blogga er eitthvað sem ég hef ekki gert lengi.
Hér er ætlunin að blogga um hitt og þetta sem liggur mér á hjarta þá stundina. Það verður mikið um að vera hjá mér næstu vikurnar fram að sveitarstjórnarkosningum 31. maí og því sjálfsagt að deila skoðunum mínum, þá sérstaklega þeim sem snerta Hafnarfjörð. Ég mun þó ekki einskorða mig eingöngu við Fjörðinn fagra á þessum síðum. Mun örugglega fara um víðan völl.
Félagar mínir í Framsóknarflokknum í Hafnarfirði hafa treyst mér fyrir öðru sætinu á listanum. Með mér á listanum eru mikir snillingar og sómafólk sem allt vill Hafnarfirði það besta. Það er síðan okkar verkefni næstu vikurnar og fram að kosningum að sannfæra aðra Hafnfirðinga um að við séum traustsins verð og með hugmyndir og lausnir sem gera góðan bæ enn betri. Um það snýst kosningabaráttan framundan. Þetta blogg er minn þáttur í því. Það er sjálfsagt að kjósendur í Hafnarfirði fái að kynnast því sem ég hef fram að færa og kynnist manneskjunni sem er á bakvið andlitið.
Síðastliðin ár hafa mál samfélagsins verið mér ofarlega í huga, þó svo ég hafi ekki verið neitt sérstaklega að ota mínum skoðunum að öðrum á opinberum vettvangi. Skoðanir allra hafa rétt á sér, hvort sem við erum sammála þeim eða ekki. Ég er öll að vilja gerð að hlusta á rök annara og á ekkert erfitt með að skipta um skoðun ef ég sannfærist um annað. Að hlusta á sjónarmið annarra víkkar út sjóndeildarhringinn og færir okkur oftar en ekki nær því að komast að betri niðurstöðu. Um það snúast stjórnmálin í mínum huga.
Læt þessar hugleiðingar duga í þessari fyrstu færslu minni.
Skelli hérna með link á facebook síðu Framsóknar í Hafnarfirði
No comments:
Post a Comment