Pages

Monday, March 31, 2014

Félagasamtök og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði ættu að finna farveg fyrir nánara samstarf varðandi bæjarmálin.

Síðast félagsfundur Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði var haldinn í sal Kiwanisfélagsins Eldborgar í Helluhrauni.  Að koma inn í þann sal fékk mig til að hugsa um hversu mikilvæg frjáls félagasamtök eru í öllum samfélögum.  Í þeim starfar fjölbreyttur hópur fólks sem í sjálfboðastarfi vinnur við að efla og bæta það samfélag sem það býr í.  Í Hafnarfirði er fjöldinn allur af félagasamtökum sem einmitt bætir bæinn okkar á svo margan hátt og styrkir tengsl fólksins sem í þeim er.   Það er of langt að telja öll félögin upp hér og ef ég myndi gera það myndi ég eflaust gleyma einhverju þeirra, sem ég vil alls ekki gera.

Í dag er ég í Hörpu sem er félag framsóknarkvenna í Hafnarfirði. Harpan er síðan aðili að Bandalagi kvenna í Hafnarfirði sem eru regnhlífasamtök átta kvenfélaga í Hafnarfirði.  Í apríl verður einmitt haldinn næsti aðalfundur BKH.  Á aðalfundi BKH á síðasta ári, kom ég uppveðruð heim og full af stolti yfir því að tilheyra hópi þessara flottu kvenna sem á svo margan og misjafnan hátt vinna að þvi að bæta samfélagið okkar í félögunum sínum. Kvenfélögin eru síðan hluti af öllum þeim fjölda félaga sem finnast í Hafnarfirði. Hvort sem það eru íþróttafélög, góðgerðarfélög, trúfélög, foreldrafélög og svo mætti lengi telja.  

Sjálf var ég félagi í JCI (Junior Chamber International) í mörg ár. En JCI eru félagasamtök fyrir ungt fólk 18-40 ára sem vill bæta sig og sitt samfélag.  Þegar ég byrjaði í JCI 1998 var enn starfandi JC Hafnarfjörður sem því miður lagðist af fyrir þó nokkur mörgum árum.  En JC Hafnarfjörður var mjög öflugt JC félag og áttu þau meðal annars húsnæði í Dalshrauni 5, en þangað mætti ég nokkrum sinnum á fundi og námskeið.  Skemmtileg tilviljun að ég skyldi byrja að starfa með Framsókn í Hafnarfirði í sama húsi, en kosningaskrifstofan var þar á fyrstu hæðinni sl. vor í alþingiskosningunum.

Ég var virkur félagi í JCI allt til ársins 2008, þegar ég varð fertug.  Ég fylgist þó enn með og mæti og tek þátt af og til í skemmtilegum JCI viðburðum.  En ég er senator og ævifélagi og JCI hjartað mun alltaf slá hratt.  Í félagasamtökum einsog JCI fær maður gífurlega reynslu sem ekki fæst annarstaðar og eignaðist ég þar ævilanga vini hér heima og erlendis.   Ég gerði nánast allt það sem hægt var að gera í JCI, var í stjórn míns aðildarfélags, fór svo í landsstjórn og var síðan landsforseti 2007.  Tók þátt í verkefnum, sótti námskeið, leiðbeindi á námskeiðum, sótti fjöldamarga erlenda viðburði einsog evrópuþing, heimsþing og alþjóðleg námskeið og akademíur. Margar af mínum bestu minningum eru tengdar starfinu í JCI.  Þeir sem eru í svona félögum þekkja þetta, hvort sem það heitir JCI, Kiwanis, Lions, Rotary,Hringurinn, Zonta, Round Table osfrv.  

Þátttaka í sjálfboðastarfi gefur ekki bara einstaklingnum færi á að kynnast fólki, þroska hæfileika sína og byggja tengsl. Sjálfboðastarf er vítamínsprauta í samfélögin þar sem þau starfa.  Félögin eru síðan í miklu samstarfi við fyrirtækin í bænum sem styrkja þau á margvíslegan hátt svo þau geti á bestan hátt sinnt sínu.

Félög i Hafnarfirði hafa til dæmis gefið fjöldan allan af læknatækjum og búnaði á Hrafnistu, Sólvang og á St. Jósefsspítalann. Svoleiðis safnanir verða að veruleika með samstarfi fólksins, félaga og fyrirtækja í Hafnarfirði.  Það er reyndar skömm af því hvernig farið var með þau tæki og tól sem gefin voru á St. Jósefsspítala, hreinlega rán á miðjum degi á tækjum sem frjáls félagasamtök í Hafnarfirði höfðu unnið hörðum höndum við að safna fyrir. (það er eiginlega efni í annan pistil)

Á hverju kvöldi hittast stórir hópur Hafnfirðinga á fundi með félaginu sínu og funda um það hvernig félagsmenn geta lagt sitt af mörkum til að þjóna betur samfélaginu. Óeigingjarnt starf unnið í sjálfboðavinnu af áhugasömum Hafnfirðingum fyrir Hafnfirðinga.  

Það er mín skoðun að félagasamtök og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði ættu að finna farveg fyrir nánara samstarf varðandi bæjarmálin.  Með góðu og reglulegu samstarfi og samtali þessara aðila nýtist enn betur sú auðlind sem er í félagasamtökum bæjarins.


Félagasamtök í Hafnarfirði fá hrós frá mér.

No comments:

Post a Comment