Komin tími á aðra færslu á bloggið, dagbókina eða hvað sem maður kallar svona færslur. Ætli þetta verði ekki bara allt það. Blogg, dagbók og allskonar ýmislegt.
Það hefur ýmislegt verið um að vera hjá mér síðastliðna daga. Bæði vegna framboðsins og í einkalífinu.
Við Framsóknarfólk erum að sjálfsögðu glöð með daginn í dag. Skuldaleiðréttingarfrumvarpið var kynnt á blaðamannafundi í dagþ Það fer síðan í umræðu í þinginu. Næstu daga munu fjölmiðlar ræða það fram og til baka. Ég ætla því að sleppa því að tjá mig mikið um það hér. Það eru aðrir miklu betri en ég í því. Í staðinn fer ég um víðan völl í þessari færslu.
Í gærkvöldi var haldin fulltrúaráðsfundur og almennur félagsfundur framsóknarfélaganna í Hafnarfirði. Ég var beðin um að stjórna báðum fundum og held það hafi tekist bara nokkuð vel hjá mér. Á fulltrúaráðsfundinum voru samþykktar tillögur að nefndarmönnum í fjáröflunarnefnd og í kosningastjórn. Farið var yfir hugsanlegt húsnæði fyrir kosningamiðstöð sem við berum vonir til að verði að veruleika, munum við kynna það þegar það er klárt.
Á félagsfundinum voru síðan almennar umræður sem snerust að mestu leyti um vikurnar og vinnuna framundan. Ég var sérstaklega ánægð með afurð fundarins, einn dagskrárliðurinn fólst í því að allir fundarmenn voru beðnir um að segja frá því sem þeir væru tilbúnir að gera eða leggja til fyrir kosningabaráttuna. Listinn sem kom út úr því var langur og fjölbreyttur. Framsóknarmenn og konur í Hafnarfirði hafa mismunandi bakgrunn og það liggur mikill fjársjóður í því sem fólk er tilbúið að leggja á sig. Einsog í öðrum félagasamtökum leggja félagsmenn Framsóknar á sig óeigingjarnt sjálfboðastarf og leggjast allir á eitt að bjóða fram tíma sinn og vinnu til að allt geti gengið sem best upp. Það er ánægjulegt að finna þann mikla hug og jákvæðni sem er í félagsmönnum fyrir þessum 10 vikum fram að kosningum.
Tími minn milli funda vegna framboðsins hefur síðan að mestu farið í undirbúning og að hugsa um fólkið mitt og sinna einkaerindum. Já maður gerir það nefnilega líka ;-)
Móðir mín var lögð inn á Hjartadeild LSP við Hringbraut í síðustu viku, en hún var farin að finna fyrir mikilli þreytu og erfiðleikum við öndun. Þrátt fyrir mikil veikindi síðastliðin ár lætur hún sjaldan deigan síga og fer (að mér finnst) sér stundum aðeins of hratt. En hún var á Selfossi að versla sér mold fyrir pottablómin sín þrátt fyrir þreytu og öndunarerfiðleika þegar hún fann að hún myndi fljótlega hníga niður ef hún kæmist ekki á spítala. Mútta keyrði því nánast aðframkomin að sjúkrahúsinu á Selfossi (þurfti að ganga nokkurn spöl því ekkert bílastæði var laust nálægt). Konurnar í móttökunni voru fljótar að sjá hvað var að og hún var strax lögð inn, en send síðar á Hjartadeildina á LSP með hjartabilun. Mikið vatn hafði safnast fyrir í líkamanum og gert hjartanu erfitt fyrir að slá. Hún er núna orðin miklu betri en búin að fara síðan í hjartaþræðingu og er að fara í aðra slíka á morgun. Við vonumst síðan til að hún verði orðin nógu góð til að fara heim fyrir helgina.
Ég hef notað hluta af hverjum degi í að heimsækja hana á spítalann og halda henni smá félagsskap. Þó vel sé hugsað um mann á spítala er alltaf frekar einmanalegt að liggja þar. Jafnvel þó ég viti að vel sé hugsað um hana, þá höfum við samt áhyggjur af henni. Það er ekki langt síðan hún lá inni á spítala vegna sýkingar í gervilið í hné í marga mánuði. Hún hefur verið að jafna sig á því síðastliðið ár. Þessvegna agalega fúlt að hjartað hafi farið að kvarta núna.
Móðir mín býr annars fyrir austan á Brautarholti á Skeiðum og hefur stundum verið að keyra eins lasin og hún nú er til Selfoss og Reykjavíkur vegna læknastands allt upp í 3x - 4x í viku. Húsnæðismarkaðurinn er þannig að þau hafa ekki fundið húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, ég vil endilega fá hana í Hafnarfjörðinn til okkar en það er lítið í boði sem hentar henni eða þau ráða við. En þau eru að leita að 3ja herbergja íbúð helst á jarðhæð eða með lyftu, þarsem þau geta haft litlu tíkína sína með sér. Því miður er framboðið ekkert. En ég er voða fegin að mamma ætlar að vera í nokkra daga eftir spítalaleguna hjá systur minni sem býr á Kjalarnesinu. Því miður gera stigarnir hjá mér henni erfitt fyrir að gista hér. Það verður því vonandi fjölskylduhátíð á Kjalarnesinu um helgina þar sem allir koma saman og mamma orðin eins hress og hægt er að búast við eftir svona uppákomur.
Dagurinn í dag var annars góður, þrátt fyrir rokið og rigninguna í morgun. Ég hafði áætlað að vera á vinnufundi vegna bæjarmála í dag, en vegna óviðráðanlegra orsaka var honum frestað þar til á morgun. Fór í staðinn í heimsókn til mömmu í fyrrafallinu og eldaði gómsætar fylltar kjúklingabringur fyrir mig og strákana.
Fer sátt að sofa og hugsa til elsku mömmu ;-)
No comments:
Post a Comment