Þegar þetta er skrifað er komið fram yfir miðnætti. Það er því þessi eini dagur eftir þar til kjörstaðir opna á laugardaginn.
Þetta hefur verið áhugaverður tími og við í Framsókn í Hafnarfirði erum sátt við okkar framlag.
En nú er einn dagur eftir og honum verður varið í að kynna sig og málefnin fyrir Hafnfirðingum. Stefnuskrána má finna hér á síðu Framsóknar í Hafnarfirði.
Sáttust er ég við að við lögðum upp með að vera með jákvæða og málefnalega kosningabaráttu. Við það höfum við staðið. Í allri okkar baráttu höfum við lagt okkur fram um að kynna stefnumálin sem við munum berjast fyrir í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Við vonumst að sjálfsögðu eftir því að kjósendur veiti okkur sitt traust, mæti á kjörstað og setji X við B.
Minni svo á kosningakaffið á kosningaskrifstofunni okkar á Linnetstíg 2. Við verðum með opið þar frá 11-19. Síðan hefst kosningavaka á All-in klukkan 21.
Vonast til að sjá ykkur á laugardaginn.
Hipp Hipp Áfram Framsókn í Hafnarfirði
No comments:
Post a Comment