Pages

Sunday, May 11, 2014

Borgarafundur í Gaflaraleikhúsinu.

Sl. fimmtudag 8. maí var ég fulltrúi framboðsins okkar á borgarafundi sem haldinn var í Gaflaraleikhúsinu.

Yfirskrift fundarins var Æskan er auður framtíðarinnar.
Hvernig hyggjast frambjóðendur efla skóla og menntastofnanir bæjarins. Hvað með menningu og listir? Frístundir fólks á öllum aldri? Er rétt að auka stuðning við íþróttir og íþróttafélög?


Hér er slóðin á fundinn sem tekinn var upp.

Virkilega gaman að taka þátt í þessum fundi og eiga skipuleggjendur mikið hrós skilið fyrir framtakið.
Takk kærlega fyrir mig.

Hér er svo ræðan mín:



Fundarstjóri,  ágætu meðframbjóðendur og kæru Hafnfirðingar.

Framsóknarflokkurinn í Hafnarfirði lítur á fjölskylduna sem hornstein samfélagsins og unga fólkið innan fjölskyldunnar sem auð framtíðarinnar.
Börnin okkar eru það dýrmætasta sem við eigum.
Það er því afar jákvætt að fá að koma hér og kynna fyrir ykkur ágætu Hafnfirðingar stefnuskrá framsóknar varðandi unga fólkið.


Ég vil þó fá að nota þetta tækifæri til að kynna mig aðeins.    En ég ákvað að gefa kost á mér fyrir þessar kosningar fyrir ekki svo löngu síðan.  Ég sá þar tækifæri til að fá að vinna í því að skapa hér í Hafnarfirði enn betra samfélag.    Ég er 45 ára gömul, sjálfstæð móðir og flutti í Hafnarfjörðinn fyrir nokkrum árum síðan, varð strax ástfangin af bænum og nú vil ég hvergi annarstaðar vera.   Mér er sagt að ég sé aðfluttur andskoti.  (afsakið orðbragðið). En ég er ekkert ósátt við þá lýsingu og er þá bara fulltrúa þessara andskota á þessum fundi og vonandi í komandi bæjarstjórn.


Ég er viðskiptafræðingur að mennt og er afskaplega rík en  ég á þrjú börn.   Tvo unga menn sem eru 18 og 20 ára. Síðan er ég svo heppin að eiga eina litla skottu, mikinn gleðigjafa sem verður eins árs núna í júní.  Ég er alin upp í vesturbænum í Reykjavík.  Faðir minn heitinn sagðist alltaf vera Kríerringur, en hann hélt bæði með KR og ÍR.  Ég geri einsog hann og kalla mig FHaukara því ég á erfitt með að gera upp á milli tveggja frábærra íþróttafélaga.    


Ég er með hafsjó af lífsreynslu sem mun nýtast vel inni í bæjarstjórn


Mín helstu baráttumál eru fjölskyldan og velferðin í sinni víðustu mynd.




Við Framsóknarmenn í Hafnarfirði höfum fundað stíft og rætt málefni bæjarins frá ýmsum hliðum.  Rauði þráðurinn í stefnuskrá okkar er bætt þjónusta við bæjarbúa.


Þar eru mörg áhugaverð atriði sem munu skipta ungt fólk og fjölskyldur í Hafnarfirði miklu máli.


Framsóknarflokkurinn leggur ríka áherslu á Fjölskylduvænt samfélag þar sem allir búa við jöfn tækifæri og öryggi.


Nú hefur verkefnastjórn um húsnæðismál skilað af sér tillögum sem munu hafa mikil áhrif á húsnæðismál til hins betra.   Við í Framsóknarflokknum í Hafnarfirði viljum að sveitarfélagið taki skýra afstöðu til hlutverks sveitarfélaganna í því sem fram kemur í þeim tillögum. Til að tryggja öflugan húsnæðismarkað hér í Hafnarfirði.


Svo allir þeir sem hér vilji búa hafi val og öruggt húsaskjól.  Það skiptir miklu máli að börnin okkar alist upp í sínu hverfi, í sínum skóla og með sínum vinum.

Síðastliðin ár hefur farið fram mikill niðurskurður og gjörsamlega verið skorið inn að beini í skóla og frístundastarfi barnanna okkar.


Eitt af forgangsatriðunum er að fjölga þarf fagmenntuðum starfsmönnum á öllum skólastigum sem hafa þekkingu til að vinna með öll börn.


Við í Framsóknarflokknum viljum auka fjárhagslegt sjálfstæði leik- og grunnskóla. Veita þannig Skólastjórnendum meira svigrúm til að ráðstafa fjármunum og koma að gerð fjárhagslykla.


Mikilvægt er að styrkja innviði leik- og grunnskóla bæjarins. Skoða leiðir til að gefa skóla-stjórnendum meira svigrúm til að auka heilbrigði og vellíðan barna og starfsmanna skólanna þar sem það er ein af forsendunum fyrir farsælu skólastarfi.


Við viljum einnig berjast fyrir því að fjölga valfögum í grunn-  og menntaskólum sem tengjast meira atvinnulífinu og skapandi greinum.   
og Tengja tækni- og iðngreinar betur við skólana.


Íþrótta og tómstundastarf er stuðningur við fjölskylduna, hefur forvarnargildi og er mikilvægt lýðheilsu bæjarbúa. Það starf þarf að styðja.


Við viljum hækka niðurgreiðslu vegna tómstunda og að þær verði í boði til 18 ára aldurs.


Sameina ætti æskulýðsmál og íþróttamál í eina deild og stuðla þannig að skilvirkari þjónustu.


Við viljum að tryggt sé að allar íþróttir og tómstundir séu aðgengilegar öllum börnum.
Við viljum að öllum greinum sé gert jafn hátt undir höfði.  
Við viljum að þeim börnum sem ekki hafa áhuga á íþróttum eða vilja gera bæði hafi aðgang að tómstundum og verkefnum sem er í takt við breytt áhugasvið þeirra.


Miklvægt er að aukinn kraftur sé settur í að virkja starf tómstundamiðstöðvanna.  Efla hópastarf og skapandi greinar og gera starfið þar meira aðlaðandi.


Eitt af markmiðum okkar er að koma Frístundabílnum aftur af stað.  Frístundabíllinn léttir á akstri foreldra og forráðamanna til og frá frístundum barna sinna í mismunandi bæjarhlutum og tengir saman skóla og tómstundir.


Börnin okkar þurfa persónulega þjónustu og við verðum að vera viss um að þau séu örugg og þeim líði vel.   


Hvernig líst ykkur á að við myndum síðan nýta Frístundabílinn enn betur og bjóða heldri borgurunum okkar akstur fyrir hádegi á milli dvalarheimila aldraðra, þjónustumiðstöðva, stofnana og verslana í bænum?

Eitt af því dýrasta sem sveitarfélag byggir er Skólahúsnæði, við viljum sjá að það sé betur nýtt, til dæmis með tómstundastarfi barna, fullorðinna og eldri borgara seinna á daginn og á kvöldin.  
Þá mætti einnig nýta skólahúsnæði fyrir námskeið og félagsstarf frjálsra félagasamtaka í bænum.  


En við viljum endilega að í Hafnarfirði verði sá miklu félagsauður sem þar er, virkjaður enn betur til góðra starfa fyrir bæinn.


Vinnuskólinn og sumarstarf unglinganna er minna og ódýrara en í nágrannasveitarfélögunum. Því viljum við breyta.
Verkefni unglinganna geta verið mun fjölbreyttari - til dæmis með skapandi greinum.


Hægt er að vera með Uppsetningar á söngleikjum - leikritum og skemmtunum í miðbænum  að sumri til, sýna á Thorsplani og auðga þannig bæjarlífið.


Með því að efla menningar og listalíf, fjölga viðburðum í bænum og stuðla að iðandi mannlífi í miðbænum gerum við bæinn eftirsóttari bæði fyrir Hafnfirðinga, aðra Íslendinga og erlenda ferðamenn. Þar þarf að koma til  gott samstarf við félagasamtök og fyrirtæki  í bænum.


Ágæti Hafnarfirðingar.


Við erum svo heppin hér í Hafnarfirði að eiga Thorsplanið og það ættum við að nýta miklu betur. Sviðið og torgið þar býður upp á mikla möguleika allt árið.    


Ég vil enda þetta á því að segja:


Hipp hipp Áfram Hafnarfjörður, X besti fjölskyldubærinn.    


Og Áfram Pollapönk.   Eigum við ekki fylla Thorsplanið og taka vel á móti þeim þegar þeir koma heim. ?






No comments:

Post a Comment