Strax daginn eftir ákváðum við að taka málið lengra og sendum áskorun á Bæjarstjórn að halda veglega móttökuathöfn fyrir hljómsveitina Pollapönk við heimkomu á Thorsplaninu.
í áskoruninni stóð meðal annars:
Strákarnir í Pollapönk hafa fyllt Hafnfirðinga og aðra Íslendinga stolti með framgöngu sinni í Evrópusöngkeppninni. Þeir sjálfir og boðskapur þeirra er fyrirmynd til annarra til góðra verka er varða jafnrétti og fordómaleysi á öllum sviðum.
Thorsplanið er tilvalið svæði fyrir flotta móttöku og mun í leiðinni glæða bæinn okkar lífi og gera okkur öll stolt af því að vera Hafnfirðingar.
Nú skorum við á bæjarstjórn að sett verði strax í gang ferli til að vel verði staðið að veglegri móttöku Pollapönkara í Hafnarfirði. Hafi það ekki þegar verið gert.
Með kveðju,
fh. Framsókn í Hafnarfirði
Jenný Jóakimsdóttir og Ágúst Bjarni Garðarsson-------------
Guðrún Ágústa bæjarstjóri tók vel í þetta og skilst mér að Menningar- og Listafjelag Hafnarfjarðar hafi tekið við keflinu og látið þetta verða að veruleika. Á þriðjudaginn klukkan 18.30 mættu svo Pollapönkarar á sviðið á Thorsplaninu og bærinn var gjörsamlega fullur af fólki á öllum aldri. Við í Framsókn vorum agalega ánægð með þetta og nýttum okkur tækifærið og buðum upp á 40 lítra af heitu Kakói sem rann ljúft niður í mannskapinn. Krakkarnir og aðrir fengu síðan hjá okkur Framsóknar grænan frostpinna og annað kruðerí. Virkilega skemmtilegur dagur. Takk Pollapönkarar fyrir að mæta og skemmta okkur.
Mesta ánægjan af þessu fólst í því að sjá að það er vel hægt að gera flottan viðburð með stuttum fyrirvara á Thorsplaninu. Eitthvað sem við ættum að gera svo miklu oftar.
No comments:
Post a Comment