Fyrir átta árum síðan eða þann 26. maí 2006 útskrifaðist ég ásamt 114 öðrum einstaklingum. tæplega helmingur frá Japan en aðrir frá mismundi löndum, einn frá hverju landi. Þar lærði ég og upplifði á 10 dögum meira en ég hef nokkurn tíma getað gert í nokkrum háskóla. Ógleymanlega lífsreynsla og hugmyndafræði sem mun alltaf fylgja mér.
Námskeiðið/ráðstefnan var haldin í Matsue í Japan. Mér var boðið að taka þátt þar sem ég var þetta ár viðtakandi landsforseti JCI Íslands. JCI Japan hefur í fjölda ára staðið fyrir samskonar námskeiði á hverju ári fyrir viðtakandi landsforseta JCI víðsvegar um heiminn. Námskeiðið sem ég var svo heppin að vera á var 19. JCI Japan Akademían. Um er að ræða leiðtoganámskeið þar sem grundvallarhugmyndin er að þjálfa leiðtoga sem munu láta gott af sé leiða í sínum samfélögum víðsvegar um heiminn.
Á þessum10 dögum varð til óbilandi kraftur sem við öll sem útskrifuðumst þennan dag 26. maí 2006 munum aldrei gleyma. Þarna kynntist ég fólki hvaðanæva að úr heiminum og til varð ævarandi vinskapur sem er ómetanlegur.
Í þessari færslu ætla ég að fá að nota enskuna að einhverju leyti þar sem ég mun vitna í leiðbeinandann á námskeiðinu og námskeiðshaldarana til að koma skilaboðunum sem við þátttakendur fengum beint í æð á þessum 10 dögum. Flestir skilja enskuna og ég kem efni þeirra örugglega betur frá mér með beinum hætti þannig, án alls misskilnings sem þýðing gæti valdið.
Fyrstu skilaboðin eru frá Yoshitaka Ikeda landsforseta Japan 2006.
"JCI Japan President welcome message"
Hér talar hann um OMOIYARI sem vinir mínir þekkja vel til og ég hef oft vitnað í
"... We have been paying particular attention to our OMOIYARI campaign which is being actively promoted across the globe. "OMOIARI" may be interpreted as possessing an unselfish spirit and having the consideration to take into account other people´s standpoints as well as considering their welfare and how to benefit them.Þessi orð Yoshitaka Ikeda segja margt um það sem við fengum að kynnast í Matsue.
This activity is based on the conviction that we can eliminate poverty, violence, and environmental destruction from the world by cultivating this traditional Japanese philosophy of leniency and consideration for others. Our sincere hope is that the academy will serve as a golden opportunity for delegates to gain a taste of the concept of "OMOIYARI". In this way we hope to establish global morality. Developing the flexibility and opennes to tolerate differences among people in our quest to become true Global Networkers. ..."
Kentaro Harada var verkefnastjóri Akademíunnar (seinna heimsforseti JCI) sagði m.a. í sínum skilaboðum til okkar.
"...The theme of the 19th JCI Academy is "JITA KYOEI": Prosperous Coexistence for Oneself and all other things" The implication is that all life on earth, lives together and prospers together. One cannot be called truly happy if one is concerned only with one´s own egoistic happiness. .."Leiðbeinandi námskeiðsins var frábær vel þekktur námskeiðshaldari með mikla reynslu.
Reginald C.J. Schaumans frá Belgíu og fyrrum heimsforseti JCI. Reginald talaði mikið um hversu mikilvægt væri að horfa á það sem sameinar okkur. Hann hafði þessi skilaboð til okkar.
".. The world today is merely focused on what divides us not on what unites us. Cultures, religions and economic systems are trying to impose their values and systems on others. More and more leaders preach selfishness, superiority over others and an uncompromising attitude. JCI can send a strong message to the world and bring a new generation of leadership: leadership based on compassion, understanding and global thinking. .."
Þessir 10 dagar voru ekki eingöngu háalvarlegir þó efnið væri það vissulega. Við þessi 114 skemmtum okkur saman á kvöldin og í ferðum um Japan og fengum þannig að kynnast hvert öðru á dýrmætan hátt. Við byrjuðum öll á því að dvelja í tvær nætur hjá japanskri fjölskyldu. Áhugamál minnar fjölskyldu var "party, party" og fór ég t.d með þeim í Karaokí hús þar sem var mikið sungið. Ég hafði tekið með mér pela af íslensku brennivíni handa fjölskyldunni (til að kynna íslenska framleiðslu) og áttræð amman á heimilinu var mikið hrifin af því. Þau báru mig á höndum sér þessa þrjá daga sem ég dvaldi hjá þeim. Þau gáfu mér smjörþefinn af japanskri menningu sem ég ber mikla virðingu fyrir. Á Akademíunni fengum svo enn frekari kynningu á Japan og þeirra siðum.
Ég gæti í raun skrifað langa færslu um þessa merkilegu upplifun en ætla að enda þetta á að setja hér inn myndir sem teknar eru af ályktun okkar sem við öll 114 sömdum og skrifuðum undir í lokin. Í henni má lesa mína grundvallarhugsjón sem ég mun aldrei hverfa frá. JCI félagar eru jafn mismunandi og þeir eru margir og eru í mismunandi stjórnmálaflokkum en eiga sér þó grundvallarskoðanir sem sameina þá. Hvar svo sem í heiminum þeir eru. Það er meira sem sameinar okkur en sundrar.
Ég mun alltaf kappkosta að standa við þetta sem ég skrifaði undir ásamt hinum 113 fyrir akkúrat átta árum síðan.
p.s Thanks Yaribel for the pics. hugs.
No comments:
Post a Comment