Pages

Friday, May 16, 2014

Enn um miðbæinn

Síðastliðið miðvikudagskvöld var ég fulltrúi Framsóknar á fundi Miðbæjarsamtaka Hafnarfjarðar með framboðunum sex.   Virkilega skemmtilegur fundur með kraftmiklu fólki sem vill sjá aðgerðir til þess að efla verslun og þjónustu á svæðinu. 

Ásamt frambjóðendum og miðbæjarsamtökum voru þarna aðilar frá Menningar og listafélagi Hafnarfjarðar.  En MLH var stofnað nú í vetur og hafa staðið fyrir margskonar viðburðum í bænum á þeim fáu mánuðum sem félagið hefur starfað.  Getið kíkt á heimasíðuna þeirra hérna .  Miðbæjarsamtökin og MLH eru akkúrat það sem miðbærinn þarfnast.  Kraftmikið fólk sem vill leggja sitt af mörkum til að búa til enn betri bæ.  

Á fundinum var rædd m.a. framtíðarsýn framboðanna varðandi miðbæinn.   Jákvætt að sjá að flestir voru á sama máli um að vilja sjá iðandi mannlíf í fallega miðbænum okkar.   Skipulag miðbæjarins hefur síðan mikil áhrif á hversu mannvænn og líflegur hann getur orðið.   

Á fundinum kom m.a. fram að íbúarnir hafa ekki verið nægilega virkir í að mæta á fundi þar sem skipulagið hefur verið kynnt.   Ég ætla að leyfa mér að segja, fyrst að fólk mætir ekki á fundi um kynningu á skipulagi, þá einfaldlega hefur ekki verið gert nóg til að fá fólk til að mæta.  Það þarf að gera það meira spennandi að mæta og taka þátt.    Alveg sama við hvern ég tala allir hafa einhverja skoðun á því hvernig þeir vilja sjá miðbæinn sinn. 

Það eru íbúar Hafnarfjarðar sem þurfa að taka afstöðu til hvernig miðbæ þeir vilja sjá.  Á að leyfa fleiri veitingahús með vínveitingaleyfi og á næturlíf í miðbæinn eða  a að vinna í því að gera miðbæinn fjölskylduvænni?  Þessum spurningum þurfa Hafnfirðingar að svara.   Eða gætum við jafnvel gert bæði?

Okkur í Framsóknarflokknum í Hafnarfirði hugnast ekkert fleiri steinklumpar í miðbænum.  Við höfum rætt um miðbæinn frá ýmsum hliðum og erum öll á því að vilja halda í það sem einkennir Hafnarfjörð. þ.e. Litrík lágreist hús og þessi gamli byggingarstíll.    Ég trúi ekki öðru en að hægt sé að halda í einkenni Hafnarfjarðar í nýbyggingum.  

Miðbæjarsamtökin köstuðu fram hugmyndinni um verkefnið Torg í biðstöðu sem hefur verið í gangi í Reykjavík sl. sumur.  Sjá hér.  Flott verkefni sem hefur verið í gangi í Reykjavík. Verkefnið gengur út á að lífvæða svokölluð biðsvæði í borginni með tímabundnum lausnum og um leið reynt að fá hagsmunaaðila til að endurhugsa svæðin til framtíðar. 

Þegar ég var sjálf að hugsa og pæla um miðbæinn fór ég í ansi mikið grúsk til að leita að hugmyndum og vel heppnuðum leiðum sem lífga upp á mannlíf og bæi.  Eitt það flottasta sem ég fann og hafði reyndar heyrt um áður er átak sem yfirvöld í Lundúnum fóru í fyrir Olympíu leikana 2012.  Gefin var út handbók um vel heppnuð verkefni og sýnt hvernig þau voru framkvæmd, hvað þurfti til og fleira.  Fullt af góðum hugmyndum þar sem eiga það öll sameiginlegt að vera samstarf fjölmargra hagsmunaaðila á hverjum stað fyrir sig.  Semsagt frábær samvinna sem einmitt við í Framsókn viljum standa fyrir.   Endilega kíkið á þessa handbók hér.  Af þessum verkefnum má margt læra. 

Eitt dæmi á myndinni hér að neðan.











No comments:

Post a Comment